|
Tomcat
Settur saman eftir þínum eigin hugmyndum og óskum
Tomcat jeppinn er byggður á Land Rover grind og íhlutum. Það gerir aðföng öll einkar auðveld og aðgengileg. Ótrúlegt úrval aukahluta og snjallra lausna gerir Tomcat, eins og Land Rover, kjörinn til erfiðra fjallaferða og akstursíþrótta.
Tomcat jeppinn er fáanlegur ósamsettur eða fullsmíður. Smíðaðu hann sjálfur.
Settu saman þinn eigin Tomcat í frístundum þínum eða jafnvel með allri fjölskyldunni. Þar sem allir leggja af mörkum eftir bestu getu og læra í leiðinni og kynnast jeppanum frá grunni. Hver sá er kann með topplyklasett og hnoðtöng að fara getur sett saman Tomcat. Fáðu hann fullsmíðaðan og tilbúinn til notkunar.
Settu saman þinn óskalista ásamt hugmyndum um væntanlega notkun og láttu okkur hjá Tomcat á Íslandi setja jeppann þinn saman. Eða aðstoða þig við samsetninguna eftir óskum þínum og þörfum.
Hvor leiðin sem farin er, verður útkoman fjölhæfur frístundajeppi fyrir þá er vilja einfaldan og sterkan jeppa. Frábærir aksturseiginleikar gera hann að skemmtilegum götubíl og öflugum fjallajeppa. Fjölbreyttir möguleikar og valkostir í útbúnaði og útliti gera Tomcat jeppann að því sem eigandinn vill að hann verði. Með örfáum handtökum er öflugur fjallajeppi sem ekkert stendur fyrir á jöklum og fáförnum fjallaslóðum orðin að sprækum og líflegum götu- eða rallýbíl. Tomcat jeppinn er léttur, sterkur, stöðugur, öruggur og umfram allt einfaldur. Það er einmitt einfaldleikinn sem er lykillinn að velgengni hans í erfiðum torfæru- og rallýkeppnum í meira en 20 ár. Einfaldleikinn gerir hann einnig þægilegan í viðhaldi, áræðanlegri og ódýrari í rekstri. Yfir 20 ára þróun og prófanir við ströngustu aðstæður gera Tomcat jeppann að frábæru leiktæki sem seint verður slegið út í getu og eiginleikum. Nánari upplýsingar um verð og valkosti liggja fyrir hjá Tomcat á Íslandi.
|