|
Um Tomcat Árið 1983 hófu bræðurnir Andrew og Mark Bowler að smíða jeppa ætlaða til akstursíþrótta og lögðu þar með grunninn að Tomcat jeppanum. Í dag hafa verið smíðaðir meira en 700 Tomcat jeppar og er u.þ.b. helmingur þeirra notaðir sem götubílar. Árið 2001 var Tomcat framleiðslan aðskilin frá Bowler sem nú framleiðir einungis Wildcat afbrigði sem er keppnisbíll ætlaður í París Dakar og þ.h. keppnir. Tomcat jeppinn er nú framleiddur hjá Tomcat Motorsport sem selur bílana ýmist samsetta eða sem ófullgert “kitt”. Tomcat á Íslandi sem er umboðsaðili Tomcat Motorsport á Íslandi, getur boðið þessa bíla hvort heldur sem fullsmíðaða og frágengna eftir óskum kaupandans eða sem ófullgert “kitt”. Val er um ýmsar vélar og vélastærðir eða frá 2,5 – 2,8 túrbó dísil með millikæli. Einnig 3,5 – 5,2 l V8 bensín. Þá fást Tomcat jepparnir einnig án vélar og kassa fyrir þá er hafa sínar eigin hugmyndir um hvernig gera eigi hlutina. Fjölmargir valmöguleikar á uppsetningu fjöðrunar gera Tomcat jeppann fjölhæfan og hentugan til notkunar við flestar aðstæður. Þannig getur jafnvel sami Tomcat jeppinn verið jöklatryllir á veturna og ósvikinn drullumallari eða jafnvel rallybíll á sumrin. Allmargir þessara bíla eru notaðir daglega í almennri umferð og þykja bæði sprækir og hafa framúrskarandi aksturseiginleika. Eru þannig í reynd fjölhæfir sportbílar fyrir allar árstíðir. Hver einstakur Tomcat jeppi er settur upp fyrir kaupandann með tilliti til fyrirhugaðrar notkunar. Þá er möguleiki að fá með Tomcat jeppanum fleiri en eina uppsetningu á fjöðrunarkerfi. Þannig að á veturna er hann t.d. á 36 ” dekkjum á 15” felgum. En á sumrin á Low Profile dekkjum og 16-20” felgum ásamt lægri og stífari fjöðrun. Mjög fljótlegt og einfalt er að breyta fjöðruninni á Tomcat jeppunum. Þá er meðal valkosta einfaldir eða tvöfaldir demparar og er val um ProComp, Bilstein, Koni eða Fox allt gasdemparar í hæsta gæðaflokki. Tomcat jepparnir eru að sjálfsögðu byggðir á heilli grind sem gefur þeim styrk og endingu. Þá er innbyggt veltibúr þannig að Tomcat jeppinn er í senn sterkur og öruggur. Veltibúrið uppfyllir ströngustu kröfur LÍA/FIA um slíkan útbúnað. Yfirbyggingin er öll úr áli og trefjaplasti GRP. Þannig að ryð og rispur granda ekki yfirbyggingunni. Um nokkra valkosti er að ræða í litum og útliti, t.d. Loftinntök, grill og ljós, hurðir og brettakantar. Í boði er standard Land Rover grill og ljósaumbúnaður svart eða samlitt, eða nýja LRX útlitið í svörtu eða málmlitt. Þá er nær endalaust framboð af aukahlutum sem auka notagildi og bæta útlit bílsinns. Rekstraröryggi er tryggt með framúrskarandi varahlutaþjónustu B&L en allir véla, drif og stýrishlutar eru original Land Rover íhlutir.
|
