Eftirfarandi texti er úr tímaritinu Bílar og Sport 6. og 7. tbl 1. árg 2005 

 

Tomcat - tryllitæki fyrir þá sem þora

 

tom jm Í síðasta tölublaði kynntum við Tomcat jeppana fyrir lesendum. Nú ætlum við að fylgjast með smíði þeirra. Þessa dagana er verið að ljúka smíði og samsetningu á þremur af fjórum Tomcat jeppum á verkstæði Tomcat á Íslandi ehf. Þessir þrír sem greinin fjallar um verða tilbúnir innan fárra vikna og fara beint í strembið þolpróf þar sem koma mun í ljós hvort þessir bílar eigi einhvert erindi í Íslenskar rallykeppnir. En Tomcat jepparnir eru einmitt hannaðir og smíðaðir til notkunnar í Hill-rally, Comp-safary, Trial og Challenge keppnum í Bretlandi. 

Tomcat jepparnir sem eru í raun einungis þróað létt keppnis-afbrigði af Land Rover jeppa, hafa staðið sig með ágætum í þessum keppnum og reyndar nánast einokað verðlaunasætin í ákveðnum keppnum hingað til. Til að gefa lesendum Bíla & Sports einhverja hugmynd um uppbyggingu þessara bíla og þá vinnu sem fer í hvern og einn bíl, birtum við hér myndir sem sýna ferlið frá byrjun. Í næsta tölublaði munum við svo fara í smáatriðin og fráganginn ljúkum verkinu og prófum Tomcat jeppann.

 

Í síðasta tölublaði kynntum við Tomcat jeppana fyrir lesendum. Nú ætlum við að fylgjast með smíði þeirra. Þessa dagana er verið að ljúka smíði og samsetningu á þremur af fjórum Tomcat jeppum á verkstæði Tomcat á Íslandi ehf. Þessir þrír sem greinin fjallar um verða tilbúnir innan fárra vikna og fara beint í strembið þolpróf þar sem koma mun í ljós hvort þessir bílar eigi einhvert erindi í Íslenskar rallykeppnir. En Tomcat jepparnir eru einmitt hannaðir og smíðaðir til notkunnar í Hill-rally, Comp-safary, Trial og Challenge keppnum í Bretlandi. Tomcat jepparnir sem eru í raun einungis þróað létt keppnis-afbrigði af Land Rover jeppa, hafa staðið sig með ágætum í þessum keppnum og reyndar nánast einokað verðlaunasætin í ákveðnum keppnum hingað til. Til að gefa lesendum Bíla & Sports einhverja hugmynd um uppbyggingu þessara bíla og þá vinnu sem fer í hvern og einn bíl, birtum við hér myndir sem sýna ferlið frá byrjun. Í næsta tölublaði munum við svo fara í smáatriðin og fráganginn ljúkum verkinu og prófum Tomcat jeppann.

Fara má nokkrar mismunandi leiðir í smíði Tomcat jeppans allt frá hreinni nýsmíði þar sem allir íhlutir koma nýir frá birgjum Land Rover verksmiðjanna eða fara hagkvæmari leið og finna eldri bíl sem er orðinn verðlítill vegna útlits og aldurs en er e.t.v. með heila grind, góðri vél og drifkerfi. Við smíði þessara bíla var seinni leiðin valin. Byrja þurfti á að rífa og hreinsa allt af grind og undirvagni. Því næst var grindin sandblásin ásamt hásingum og öllum stífum. Þá voru allir hlutir ryðvarnagrunnaðir og málaðir. Eftir málningu var lokið voru allir hlutar prófaðir og endurnýjað í hásingum, stýri og hemlum eftir þörfum. Eftir að búrgrind hefur verið soðin á upphaflegu Land Rover grindina og allt málað eru hásingar settar undir aftur með nýjum Polyurethanfóðringum frá DEFLEX. Þannig er haldið áfram uns allt sem endurnýjunar þarfnast hefur verið skipt út fyrir nýtt og betra. Þó Tomcat jeppinn sé fáanlegur sem heill pakki samsettur eða í hlutum frá Tomcat Motorsport Ltd var valin sú leið að láta framleiða á Íslandi allt er með nokkru leiti mögulegt var að láta framkvæma hér heima tæknilega og kostnaðarlega. Þannig eru t.d. allir hlutir úr áli smíðaðir á Íslandi, einnig voru pústflækjur og pústkerfi ásamt kælivatnslögnum smíðað hjá Pústverkstæði Einars í Kópavogi en leysa þurfti í fyrsta sinn ákveðin vandamál vegna stýris og knapps rýmis.

Eins og fram kom í síðasta tbl. þá eru einungis á áttundahundrað Tomcat jeppar til og hafa þeir jöfnum höndum verið byggðir af eigendum sínum eða á Tomcat verkstæðum. Ekki er óraunhæft að ætla sér að byggja slíkan bíl á einum vetri í tómstundum. Áætlaður byggingatími eftir standsetningu grindar og undirvagns er einungis u.þ.b. 200 vinnustundir. Á verkstæði Tomcat á Íslandi tekur það u.þ.b. 2-3 vikur að ljúka við einn bíl. Tomcat útbúinn í rally (Comp-Safari Specification) kostar með öllum búnaði Kr. 3.600.000,-. Sambærilegur bíll í Bretlandi kostar frá kr. 6.000.000,- Hver segir að bílar séu dýrir á Íslandi. Laghentur maður sem veit hvað snýr fram og aftur á skralli og hnoðtöng getur sjálfur sett saman slíkan bíl fyrir mun minna verð og jafnframt haft ofan af fyrir sjálfum sér í svartasta skammdeginu. Einn Tomcat jeppinn er seldur einstaklingi og verður afhentur tilbúinn fyrir 36-38" dekk með loftkerfi og læsingum, 4 l. V8 bensínvél 275 bhp, 5 gíra beinskiptur. Hann mun vega um eitt og hálft tonn, rúmlega áætlað og kosta kaupandann Kr. 4.500.000,- á gengi júní 2005.

Á myndunum hér á síðunni / opnunni má sjá Tomcat taka á sig mynd og verða að bíl. Þó hrár sé og laus við allan íburð fer hann vel með ökumann og farþega. Þeir sitja vel varðir og öruggir inn í veltibúri sem ætti að veita hugarró hvort heldur sem er í jöklaferðum þar sem jeppar geta oltið og steypst fram af hengjum eða á mikilli ferð í rallykeppnum eða jafnvel torfærukeppnum. Í næsta tölublaði Bíla og Sport verður byggingarsagan skoðuð enn frekar og farið í ýmis smáatriði og frágang eins og t.d. rafkerfi, hemlakerfi, innréttingu, mælaborð, miðstöð og fl. Þá verður síðar gerður samanburður á Tomcat rallyjeppa og jöklajeppa.

Tomcat jepparnir sem fjallað er um hér eru þrír jeppar sem útbúnir eru til rallaksturs. Eru þeir útbúnir samkvæmt leiðbeiningum frá Tomcat Motorsports Ltd sem hefur í auknum mæli lagt áherslu á þróun Tomcat jeppans til hraðaksturs eins og t.d. rallýkeppna. Mun verksmiðjan í Englandi senda einn tilraunbíl í alþjóðlega rallið í sumar til að keppa með Íslenska liðinu. Þá mun einn einkaaðili (privateer) koma með sinn Tomcat og keppa einnig. Er hætt við að hart verði barist í jeppaflokknum í ár en Breski herinn sendir sitt lið sem endra nær og einnig munu Ian Sykes og fleiri mæta allir á Land Roverum.

Í síðasta tölublaði byrjuðum við að fylgjast með smíði Tomcat jeppanna. Er ætlunin að ljúka smíði þeirra í þessu blaði og reynsluaka þeim í því næsta. Þar sem við skildum við verkið síðast var yfirbyggingin að mestu tilbúinn og vél og drifbúnaður komið á sinn stað og orðið starfhæft. En til upprifjunar og fyrir þá er eru að byrja að fylgjast með skulum við rifja upp í örstuttu máli það sem á undann er gengið.

Smíðin hefst á standsetningu undirvagns og grindar sem kemur t.d. úr Range Rover Classic eða einhverjum öðrum Land Rover. Þegar undirvagn og grind eru tilbúin er búrgrind frá Tomcat á Íslandi soðin á hana ásamt ýmsum festingum og styrkingum. Þá er gólfi og hvalbökum komið fyrir og loks klætt með trefjayfirbyggingunni.

Þegar hér er komið sögu er verkið rúmlega hálfnað. Kælikerfislögnum er komið fyrir inni í stokk í sérstakar festingar. Þá er afturrými klætt með áli og gólf í farangursrými fest. Á þessu stigi er farið að huga að ísetningu rafkerfis og annars búnaðar. Fyrst er öllum festingum komið á sinn stað eins og ljósarömmum og sökklum fyrir hina ýmsu hluti. Er þá hægt að leggja raflagnirnar í bílinn. Segja má að tiltækar séu fjórar aðferðir við það. Nota gamalt kerfi úr t.d. grindinni, kaupa tilbúið kerfi t.d. frá Aukaraf eða Simtek, leggja nýtt kerfi in situ eða framleiða kerfið eftir máti á borði og koma því fyrir eftirá. Í þessu tilviki er síðastnefndi kosturinn valinn enda verið að smíða 4 bíla í einu. Ef hins vegar einungis ætti að smíða einn bíl er e.t.v. þægilegast að leggja kerfið beint í bílinn (in situ). Stofntöflu og aðaltöflu er komið fyrir með segulrofum, blikkara og öryggjum. Ljós og rúðupissi, rúðuþurrkum er komið fyrir ásamt kæliviftum og allt tengt. Miðstöðin kemur þar næst í bílinn og var valinn 4 kW tveggja hraða miðstöð í þessa bíla og komið fyrir á hvalbak og hverfur því að mestu á bak við mælaborðið. Að þessu loknu er mælaborð sem áður hefur verið smíðað og sett saman með mælum og rofum komið fyrir í bílnum og tengt með öruggum tengjum. Eru u.þ.b. 50 tengingar milli mælaborðs og raflagna og 100 tengingar í aðaltöflu. Í töflunni eru sökklar fyrir átta segulrofa og/eða blikkara og 32 greinar þar af eru 10 lausar fyrir ýmsan aukabúnað og ljós. Allt kerfið er hannað og framleitt miðað við tvöfalt álag sé það borið saman við sambærileg kerfi fáanleg erlendis frá í keppnisbíla. Að endingu er sjálfstætt vélarafkerfi tengt við rafkerfi bílsins með einu tengi.

Tomcat jeppinn stendur þá næstum fullskapaður utan þess að eftir á að setja í hann stýri og innréttingu s.s. stóla, öryggisbelti og slökkvitæki. Fjölmargir möguleikar eru í boði þegar komið er að sætunum og beltunum. Fyrir valinu urðu Tomcat motorsport stólar, sem reyndar eru framleiddir af Motordrive Ltd, sem er einn fremsti framleiðandi stóla og ýmiskonar gler- og koltrefja íhluta fyrir kröfuharðan markað akstursíþróttamanna og keppnisliða. Gæðamun á stólum upplifa menn ekki fyrr en eftir að hafa sest í þá og borið saman það sem á markaðnum er. Einföld þumalputtaregla er að stóllinn sem erfiðast er að komast í er líklegast sá stóll sem heldur þér best þegar á reynir (ef stærðin er rétt). Þatta á við um keppnisstóla og e.t.v. stóla í jöklabíla en er minna atriði á götuna þar sem allt aðrir kraftar hafa áhrif vegna minni hraða og svo frv.. Beltin koma frá TRS (Total Restrain System) en þegar kemur að öryggistækjum borgar sig að fara varlega í að spara með því að kaupa e.t.v. lakari vöru við vægu verði. Þegar kom að stýrinu réði smekkur vali enn flest stýrin í keppnisflokki eru mjög vönduð og sterk að allri gerð. Fyrir valinu varð OMP djúpt Rallýstýri með rúskinni og merki fyrir hjólastefnu.

Sauma þurfti utan um gír- og drifstöng og kom sér þá vel fyrir Tomcat smiðinn að hafa verið óvenju þægilegur í umgengni heima fyrir nokkra daga á undan. Húsmóðirin saumaði einnig áklæðið á mælaborðið sem er úr áli en klætt með víniláklæði sem keypt var í Godda í Kópavogi.
Stendur nú Tomcat jeppinn fullskapaður en í þessu tilviki er engin hljóð- eða hitaeinangrun sett í bílinn né heldur teppi eða mottur. Má því búast við að öll véla- gír- og veghljóð berist inn í bílinn. Það kemur ekki að sök í þessu tilviki því fyrstu Tomcat jepparnir sem settir eru saman fara rakleitt í rallykeppnir.

Ekki hefur verið fjallað sérstaklega um fjöðrunina í bílnum sem nú lokið er við að smíða. Fjölmargar uppsetningar eru fáanlegar allt frá stuttum, stífum rallygormum til mjög langra gorma fyrir fullvaxna jeppa sem ætlað er að flengjast um fjöll og firnindi.

Eins og áður hefur komið fram er óhætt að segja að hver sá er þekkir eitthvað til bíla og kann með verkfæri að fara geti byggt sér Tomcat í frístundum. Einungis er nauðsynlegt að eiga algeng handverkfæri því Tomcat á Íslandi afhendir grindurnar ásoðnar á undirvagninn með öllum festingum og eyrum. Þannig gæti smíðaverkefnið t.d. verið kjörið skammdegisverkefni fyrir samhenta fjölskyldu sem vill verja frístundunum saman við einhvað uppbyggilegt og spennandi. Ekki skemmir að ávöxtur erfiðisins er bráðskemmtilegur bíll sem nota má sem lágan sportbíl á sumrin en þeysa á vit ævintýra á háfættum jöklatrylli að vetri til. Þá er einnig hægt að fá Tomcat jeppann afhentan á hvaða byggingastigi sem er jafnvel fullbúinn. Setjast uppí og njóta aksturseiginleika sem koma flestum þægilega á óvart.

Í frásögn þessari af smíði Tomcat jeppanna hefur ekki verið farið í einstök smáatriði eða djúpt í tæknileg mál, heldur fremur stiklað á stóru til að gefa einhverja mynd af ferlinu. Ítarlegri upplýsingar geta menn fengið á heimasíðu www.tomcat.is eða með fyrirspurn á This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it . Er hverjum og einum svarað um hæl eftir því sem spurningar berast. Í næsta tölublaði Bíla & Sports ætlum við að reynsluaka Tomcat jeppanum í rallyútfærslu og fjalla örlítið nánar um eiginleika þessa magnaða tækis sem getur gefið Land Rover jeppum sem hefur verið lagt, endurnýjun lífdaga - og nýjum eiganda margar góðar stundir

 
SEO SEO - Søgemaskineoptimering
Linkguide Partner